Hoppa yfir valmynd

03.01.2024

Viljayfirlýsing Carbfix og Great Carbon Valley um kolefnisbindingu í Kenía

Carbfix og Great Carbon Valley í Kenía hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf um kolefnisbindingu í Kenía. Viljayfirlýsingin var undirrituð á loftslagsráðstefnunni COP28.

Great Carbon Valley vinnur að því að þróa loftslagsverkefni í Austur-afríska sigdalnum, sem meðal annars ganga út á föngun kolefnis úr andrúmsloftinu og bindingu þess í jarðlögum.

 

Carbfix hefur í meira en áratug beitt eigin tækni til að fanga koldíoxíð (CO2) frá Hellisheiðarvirkjun og binda það varanlega í basaltjarðlögum þar sem það umbreytist í steindir. Þá hefur Carbfix frá árinu 2017 notað sömu aðferð til að binda CO2 sem Climeworks fangar úr andrúmsloftinu á Hellisheiði, og er það fyrsta loftslagsverkefni heims þar sem CO2 er fangað úr andrúmsloftinu og bundið í jörðu á sama stað. Markmið Carbfix er að nýta þessa reynslu í verkefnum Great Carbon Valley, sem ganga meðal annars út á að nýta umfangsmikil basaltjarðlög á svæðinu til kolefnisbindingar.

 

„Afríka er að mörgu leyti í góðri stöðu til að leggja af mörkum til baráttunnar gegn loftslagsbreytingum,“ segir Bilha Ndirangu, forstjóri Great Carbon Valley. „Við búum að umtalsverðum endurnýjanlegum orkuauðlindum og við höfum jarðlögin sem þarf til að binda kolefni varanlega. Við viljum taka forystu í vegferðinni í átt til græns hagkerfis og nýta til þess bæði hefðbundnar og nýjar tæknilausnir, til hagsbóta fyrir loftslagið og samfélagið. Það er mikilvægt skref að fá Carbfix með í þá vegferð.“

 

„Við fögnum því að hefja samvinnu við Great Carbon Valley um að kanna möguleika á að nýta tækifærin sem Kenía hefur til að byggja upp grænan iðnað og vinna gegn loftslagsvánni,“ segir Edda Aradóttir framkvæmdastýra Carbfix. „Ísland og Kenía eiga það sameiginlegt að búa að auðlindum sem geta nýst til að þróa og byggja upp loftslagslausnir, auðlindir á borð við jarðhita og basaltjarðlög sem geta bundið kolefni á öruggan og varanlegan hátt. Stefna Carbfix er að nýta langa reynslu okkar á Íslandi til að innleiða tækni okkar víðar. Við erum því virklega spennt fyrir tækifærunum sem liggja í samstarfinu við Great Carbon Valley.“

Stafrænt kolefnisspor þessarar fréttar/greinar er áætlað 0,2 til 1,0g CO₂ ígilda á hverja heimsókn.